Hafnarvörður dróst með lyftara

mbl.is/Eggert

Lyftara var ekið á hafnarvörð í Grindavík í vikunni að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum. Þrjú fiskikör voru á lyftaranum þegar atvikið átti sér stað, og féll hafnarvörðurinn í jörðina við ákeyrsluna og dróst með honum nokkurn spöl áður en stjórnandi tækisins varð hans var.

Sá fyrrnefndi var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Hann reyndist hafa sloppið betur en á horfðist því hann hlaut mar en ekki frekari meiðsl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert