Hið fegursta vetrarveður á snævi þöktu landinu í dag en él á víð og dreif og frost að 14 stigum inn til landsins. Dregur úr éljum þegar líður að kvöldi en gengur í norðankalda og fer að snjóa norðaustanlands.
Á morgun nálgast lægð sunnan úr hafi og skil hennar ganga inn á land. Hvessir þá af suðaustri og fer að snjóa, fyrst sunnan- og vestanlands, en síðar einnig fyrir norðan og austan. Lægðinni fylgir hlýtt loft, sem hækkar hita upp fyrir frostmark, þ.a. blotar við suðurströndina. Hlýindin standa stutt því á föstudag snýst í norðaustanátt með snjókomu eða éljum og kólnar aftur í veðri, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
Hæg vestlæg eða breytileg átt og él víða um land, en norðvestan 8-10 m/s og fer að snjóa austan til með kvöldinu. Frost 2 til 15 stig, kaldast inn til landsins.
Gengur í suðaustan 10-18 með snjókomu sunnan- og vestanlands á morgun, en slyddu eða rigningu við sjávarsíðuna. Hvessir einnig og snjóar á Norður- og Austurlandi um kvöldið en lægir þá jafnframt suðvestan til með skúra- eða éljalofti. Hlýnar á morgun og hiti yfirleitt 0 til 5 stig síðdegis.
Á fimmtudag:
Gengur í austan og suðaustan 10-18 m/s með snjókomu í flestum landshlutum, en slyddu og síðar rigningu við S- og SA-ströndina. Snýst í suðvestan 8-15 með éljum síðdegis, fyrst SV-til. Frost yfirleitt 1 til 6 stig en hlánar syðst um tíma að deginum.
Á föstudag:
Norðaustan 10-15 m/s og snjókoma eða él N- og A-lands, en hægara og bjart SV-til, en él undir kvöld. Frost 0 til 8 stig, minnst syðst.
Á laugardag:
Norðan 3-8 m/s og bjartviðri en 8-15 og snjókoma með köflum austast fram eftir degi. Talsvert frost um allt land.
Á sunnudag:
Hægviðri, léttskýjað og hörkufrost framan af degi, en síðan vaxandi suðaustanátt og fer að snjóa S- og V-lands undir kvöld og hlýnar í bili.
Á mánudag:
Útlit fyrir suðvestanhvassviðri með éljagangi, en hægara og þurrt eystra. Áfram kalt í veðri.
Á þriðjudag:
Snýst líklega í stífa norðanátt með ofankomu NV-til, en annars hægara og bjart, en kalt veður.
Höfuðborgarsvæðið: Hálka og éljagangur eru á stofnbrautum.
Suðvesturland: Hálka eða snjóþekja og éljagangur eru á flest öllum leiðum. Þæfingsfærð og él eru á Mosfellsheiði, í Kjósarskarði og í Hvalfirði. Unnið er að mokstri.
Vesturland: Víðast hvar hálka eða snjóþekja og snjókoma eða éljagangur víða. Þæfingur er m.a. í Staðarsveit.
Vestfirðir: Snjóþekja og hálka á vegum og eitthvað um þæfing á suðurfjörðunum og á Ströndum. Þungfært er norður í Árneshrepp.
Norðurland: Hálka víðast hvar en snjóþekja á útvegum.
Norðausturland: Hálka og snjóþekja eru á flest öllum vegum.
Austurland: Snjóþekja eða hálka víðast hvar.
Suðausturland: Víðast hvar hálka eða snjóþekja.
Suðurland: Hálka eða snjóþekja á flestum vegum.