Enginn í vegi fyrir framkvæmdum — enn

Frá veginum í Ingólfsfirði.
Frá veginum í Ingólfsfirði. Ljósmynd/Guðmundur Hrafn Arngrímsson

Framkvæmdir í Ingólfsfirði á Ströndum, við veginn yfir til Ófeigsfjarðar, eru á áætlun. Þetta segir Friðrik Friðriksson, talsmaður VesturVerks, sem leggur veginn. Engir hafi truflað framkvæmdirnar hingað til.

Friðrik segir að í dag hafi menn komið fyrir ræsum, drenað og þurrkað svæði svo malbika megi veginn. Gert er ráð fyrir að vinna standi yfir í allt að tíu daga.

Hann margítrekar að framkvæmdirnar séu minniháttar. Mótmæli hluta landeigenda hafa ekki truflað framkvæmdir, enda setja þeir sig í raun fæstir upp á móti vegabótunum sjálfum heldur frekar því sem fylgir í kjölfarið: virkjanaframkvæmdum í Hvalá.

„Vest­ur­Verk má mín vegna al­veg bæta veg­inn til Ófeigs­fjarðar. En þeir munu aldrei drösla 40 tonna túr­bín­um um þann veg. Við mun­um koma í veg fyr­ir það með margra góðra manna hjálp,“ sagði Hrafn Jökulsson umhverfissinni í samtali við mbl.is í gær.

Ekki eru þó allir landeigendur ósáttir við virkjanaáformin. Í samtali við mbl.is segist Gísli Baldur Jónsson einn landeiganda í Seljanesi vera sáttur við veglagninguna og fyrirhuguð virkjanaáform.

Ljósmynd/Guðmundur Hrafn Arngrímsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert