Óbilgirni Reykjavíkurborgar „með hreinum ólíkindum“

Reykjavík verður eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu með hæsta lögleyfða fasteignaskatt …
Reykjavík verður eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu með hæsta lögleyfða fasteignaskatt af atvinnuhúsnæði. mbl.is/Kristinn Magnússon

Reykjavík er eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu þar sem álagning fasteignaskatta er í lögleyfðu hámarki. Samkvæmt frumvörpum tíu af tólf stærstu sveitarfélaga landsins til fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020 ætla Akranes, Kópavogur, Mosfellsbær og Vestmannaeyjar að lækka fasteignaskatta.

Þetta kemur fram í samantekt Félags atvinnurekenda og fréttatilkynningu á vefsíðu félagsins. Þar segir að mesta lækkunin verði á Akranesi eða 11,4% á atvinnuhúsnæði, úr rúmlega 1,58% í 1,4%, og að nokkur önnur sveitarfélög ætli sér einnig að lækka fasteignaskatta.

„Það vekur hins vegar athygli að Reykjavíkurborg, þar sem yfir helmingur af öllu verslunar- og skrifstofuhúsnæði landsins er staðsettur, sér enn eitt árið enga ástæðu til að lækka fasteignaskatta og innheimtir, eitt sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, hæsta lögleyfða fasteignaskatt af atvinnuhúsnæði, 1,65% af fasteignamati,“ segir í tilkynningu FA.

Myndin sýnir álagningarhlutfall sveitarfélaga eða breytingar á því.
Myndin sýnir álagningarhlutfall sveitarfélaga eða breytingar á því. Ljósmynd/Félag atvinnurekenda

Samkeppnisstaða Reykjavíkurborgar fari hratt versnandi

FA hefur undanfarin ár skorað reglulega á sveitarfélög að lækka fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði til að sporna gegn gífurlegum hækkunum á fasteignamati.

„Við fögnum því að sjálfsögðu að þessi barátta ber árangur og erum sérstaklega ánægð með viðbrögð sveitarfélaga á borð við Akranes og Vestmannaeyjar, þar sem hækkunum fasteignamats er mætt með myndarlegri lækkun álagningarprósentu,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA í tilkynningunni og bætir við:

„Að sama skapi eru það vonbrigði að sum sveitarfélög sjái ekki ástæðu til að lækka fasteignaskatta. Sum vilja ekki sýna fyrirtækjum sömu sanngirni og eigendum íbúðarhúsnæðis. Óbilgirni stjórnenda Reykjavíkurborgar, sem halda fasteignaskatti á atvinnuhúsnæði í lögleyfðu hámarki og moka milljörðum í borgarsjóð vegna hækkana fasteignamats, er með hreinum ólíkindum. Samkeppnisstaða borgarinnar gagnvart ýmsum nágrannasveitarfélögum, sem vilja laða til sín fyrirtæki með hagstæðu skattaumhverfi, til dæmis Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og Akranesi, fer hratt versnandi.“

Árborg og Reykjanesbær eiga eftir að leggja fram fjárhagsáætlun.
Árborg og Reykjanesbær eiga eftir að leggja fram fjárhagsáætlun. Ljósmynd/Félag atvinnurekenda

Óbreytt staða í Hafnarfirði, Garðabæ og Seltjarnarnesi

Þá kemur þar fram að Hafnfirðingar ætli að halda fasteignaskatti óbreyttum eftir umtalsverðar lækkanir síðustu ára og að í frumvarpi Garðabæjar sé lagt til að fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði verði óbreyttur en að það eigi að taka álagningarhlutfallið til skoðunar milli umræðna í bæjarstjórn. Á Seltjarnarnesi er lagt til að skatthlutföll verði óbreytt en þau eru þau lægstu á höfuðborgarsvæðinu.

Fjarðabyggð hyggst halda álögum á húsnæði óbreyttum á næsta ári en á Akureyri er lögð til lítilsháttar lækkun á fasteignaskatti á íbúðarhúsnæði en engin lækkun á skatti á atvinnuhúsnæði.

Af tólf stærstu sveitarfélögum landsins eiga eingöngu Árborg og Reykjanesbær eftir að leggja fram fjárhagsáætlun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert