Niðurstaða úr samráðsferli um stillingu klukkunnar á Íslandi mun liggja fyrir um vorjafndægur, í mars. Þetta segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Starfshópur, sem Óttar Proppé heilbrigðisráðherra skipaði um stillingu klukkunnar sjö dögum áður en hann lét af embætti, skilaði af sér tillögum fyrir réttu ári og voru niðurstöður hennar kynntar í samráðsgátt stjórnvalda, þar sem almenningi gefst kostur á að gera athugasemdir. 1.586 umsagnir bárust í samráðsgáttinni frá almenningi, og hafa þær aldrei verið fleiri.
„Ég ákvað að fara þessa óvenjulegu leið og láta reyna á kosti þessa samráðs og er mjög ánægð með útkomuna,“ segir Katrín. Margar vel rökstuddar umsagnir hafi borist.
Helstu sjónarmið beggja póla hafa verið dregin saman í skýrslu og segir Katrín að þar takist einkum á þau sem bendi á heilsufarsleg áhrif morgunbirtu, annars vegar, og þau sem bendi á þá heildarfækkun birtustunda á vökutíma sem fylgja myndi breytingunni og gætu leitt til minni útivistar og hreyfingar.
Forsætisráðherra mun á næstu vikum funda með þeim aðilum sem sendu inn veigamiklar umsagnir, að sögn til að kafa dýpra ofan í rökstuðning þeirra. Sjálf vill hún ekki gefa upp afstöðu í málinu, en bendir á að skiptar skoðanir séu um málið þvert á stjórnmálaflokka. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra lýsti því yfir um helgina að henni hugnaðist seinkun klukkunnar. Hún hefði lengi verið á báðum áttum, en hefði komist að niðurstöðu eftir að hafa kynnt sér málið til hlítar.
Til stendur að hætta flakki milli sumar- og vetrartíma í ríkjum Evrópusambandsins á næstu árum. Ekki hefur þó verið tekin ákvörðun um hvort ríki sambandsins hyggist halda sig við sumartímann, sem þegar er í gildi meirihluta ársins, eða vetrartímann (sem sumir kalla náttúrulegan, þótt klukkan sé vitanlega uppfinning mannsins). Fari svo að nágrannaríki okkar í Evrópu ákveði að halda sig við sumartímann, en Íslendingar að seinka klukkunni, verður þriggja klukkutíma munur á staðartíma Íslands og meginlands Evrópu.
Spurð hvort ekki væri ráðlegt að bíða með ákvörðun hér á landi þar til ríki Evrópusambandsins hafa komist að niðurstöðu, gefur Katrín í skyn að sú bið gæti orðið ansi löng. Því standi það ekki til.