TF-LIF leitar úr lofti

TF-LIF í flugskýli á Akureyrarflugvelli í morgun.
TF-LIF í flugskýli á Akureyrarflugvelli í morgun. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, var nú á tólfta tímanum send til leitar í Sölvadal. Þyrlan tók á loft frá Akureyrarflugvelli klukkan 11:16. Fjögurra manna áhöfn er um borð sem og björgunarsveitarmaður á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

Áhöfn þyrlunnar kannar sömuleiðis aðstæður á svæðinu úr lofti ásamt því að taka þátt í leitinni. TF-LIF hefur verið til taks á Akureyri undanfarinn sólarhring.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert