Gerð var umfangsmikil leit í skipinu Mykines er það lagðist að bryggju í Þorlákshöfn á föstudag. Nokkrir gámar voru teknir til frekari skoðunar á innihaldi.
Leitin var samstarfsverkefni embætti tollstjóra og lögreglustjórans á Suðurlandi. Leitað var í skipinu með sex fíkniefnaleitarhundum, frá tollstjóra, lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum og fangelsinu Litla-Hrauni. Leitað var í farmi sem skipað var upp hérlendis og einnig var leitað í skipinu sjálfu. Rúmlega tuttugu manns tóku þátt í aðgerðinni.
Á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi kemur fram að aðgerðin hafi tekist vel í alla staði og fullvíst megi telja að áframhald verði á samstafi sem þessu og reglubundið eftirlit verði með farmflutningum til Þorlákshafnar.