Fulltrúar ellefu aðildarfélaga BHM færðu samninganefnd ríkisins heimabakaða köku á samningafundi í morgun. Í fréttatilkynningu frá BHM-félögunum ellefu segir að með þessi hafi félögin viljað hvetja samninganefnd ríkisins til dáða, en viðræður hafa staðið yfir í tæpa tíu mánuði og „lítið þokast í samningsátt“.
Félögin ellefu, sem eru í samfloti í kjaraviðræðum við ríkið, telja að þær launahækkanir sem ríkið hefur boðið á þeim 42 fundum sem farið hafa fram til þessa séu ófullnægjandi. Þá geti félögin ekki sætt sig við að félagsmenn greiði fyrir styttingu vinnuvikunnar með lækkun á yfirvinnutaxta og sölu kaffi- og matarhléa, eins og ríkið hafi boðið.
„Að mati félaganna er þetta ekki til þess fallið að draga úr vinnutengdri streitu og álagi. Þvert á móti er hætta á að tíðni veikinda hjá starfsfólki aukist með tilheyrandi kostnaði fyrir ríkisstofnanir og samfélagið allt.“
Félögin ellefu sem stóðu að bökun kökunnar eru Dýralæknafélag Íslands, Félag geislafræðinga, Félag íslenskra náttúrufræðinga, Félag íslenskra hljómlistarmanna, Félag lífeindafræðinga, Félagsráðgjafafélag Íslands, Iðjuþjálfafélag Íslands, Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga, Ljósmæðrafélag Íslands, Sálfræðingafélag Íslands og Þroskaþjálfafélag Íslands.