Miklar umferðartafir eru á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar þar sem umferðarljósin á gatnamótunum eru í einhverju ólagi. Langar biðraðir hafa myndast og er lögreglan á leið á svæðið til að stýra umferðinni.
Blaðamaður mbl.is er einn þeirra sem situr fastur í bifreið sinni.
Hann segir að löng röð hafi myndast í austurátt en lögreglan sé á leiðinni til að greiða úr flækjunni.