Vegagerðin varar við því að þar sem tími framkvæmda standi nú sem hæst sé víða nýlögð klæðning. Þá er einnig varað við því að vegna hita undanfarna daga geti víða verið blæðingar í slitlagi sem skapi hættu.
Til að bregðast við þessu hafa verið settar upp viðvaranir víða um land og mun starfsfólk Vegagerðarinnar fylgjast með þessu og grípa til aðgerða ef þörf gerist.
Eru vegfarendur hvattir til að hafa varann á og virða merkingar og hraðatakamarkanir.
Athugið: Víða um land er nýlögð klæðing. Vegna hlýinda síðustu daga hefur orðið vart við blæðingar í slitlagi sem geta skapað hættu. Settar hafa verið upp viðvaranir víða um land. Vegfarendur eru hvattir til að hafa varann á og virða merkingar og hraðatakmarkanir. #færðin
— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) July 3, 2020