Björgunarsveitin á Hvolsvelli hefur verið kölluð út vegna ferðamanna sem festu bíl sinn í á á leið í Þórsmörk.
Útkallið barst um klukkan hálfsex í dag en í tilkynningu frá Landsbjörg segir að fólkið sé enn í bílnum sem fastur er í einni af minni ám svæðisins.
Átján gráða hiti er í Þórsmörk þessa stundina og vindur með minnsta móti.
Uppfært 21:38
Vel gekk að losa bílinn og gátu ferðamennirnir haldið leiðar sinnar.