Vegna fræsunar á Vífilsstaðavegi verður götunni lokað milli Flataskóla og Hafnarfjarðarvegar á morgun, fimmtudaginn 24. september. Vinna mun staða yfir á milli kl. 09:30-16.
Fyrri hluta dags verður Vífilsstaðavegur lokaður til vesturs og hjáleið út úr Garðabæ verður um Litlatún og Goðatún.
Seinni hluta dags verður Vífilsstaðavegur lokaður til austurs og hjáleið inn í Garðabæ verður um Litlatún og Goðatún.