Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti sjúkling í Ólafsvík í nótt og flutti á Landspítalann. Yfir 100 sjúkraflutningar voru hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins síðasta sólarhringinn.
Af sjúkraflutningunum voru 23 forgangsflutningar. Tvö útköll voru á dælubíla slökkviliðsins.