Torstein Lindquister, héraðssaksóknari í Troms og Finnmark, hefur krafist óbreyttrar fangelsisrefsingar í áfrýjunarmáli Gunnars Jóhanns Gunnarssonar, sem í október hlaut 13 ára fangelsisdóm fyrir að ráða hálfbróður sínum, Gísla Þór Þórarinssyni, bana með haglaskoti að morgni 27. apríl 2019.
Frá þessu greinir héraðsblaðið iFinnmark í dag.
Réttarhöldin hófust 22. febrúar og sagði dómstjórinn Vidar Stensland í gær að stefnt væri að dómsuppkvaðningu í þessari viku eða byrjun þeirrar næstu.
Í kröfu héraðssaksóknara felst að Gunnar muni áfram sæta 13 ára fangelsisrefsingu, að frádregnum 674 dögum sem hann hefur varið í varðhaldi.
Verjandi Gunnars, Bjørn Andre Gulstad, sagðist við réttarhöldin þeirrar trúar að í mesta lagi mætti sakfella skjólstæðing sinn fyrir manndráp af gáleysi.
Rétturinn yrði að komast að niðurstöðu um hvort banaskotið hafi verið viljaverk.
„Ef þetta snýst um ásetning þá verður maður að sanna að sakborningurinn, á augnabliki gjörningsins, hafi í raun og veru verið sá sem hleypti af byssunni. Ég tel að það geti maður ekki hér,“ sagði Gulstad.
Hann gerir kröfu um sýknu en til vara að fangelsisvist Gunnars verði skert, með hliðsjón af óbreyttum og stöðugum framburði skjólstæðingsins frá fyrsta degi.