Benedikt Jónsson mun taka við sem formaður Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands, UÍA. Gunnar Gunnarsson, fráfarandi formaður, gaf ekki kost á sér á sambandsþingi UÍA, sem fram fór í dag, og því tekur Benedikt við.
Gunnar hefur vermt formannsstól UÍA samfleytt í níu ár og einn dag en Benedikt kom inn í stjórnina árið 2017. Þrátt fyrir aðeins fjögurra ára stjórnarsetu hefur hann nú þar mestu reynsluna.
Í fyrra gengu tveir úr stjórn UÍA og bættust í dag Gunnar og Ester Sigurðardóttir í hóp þeirra sem hætta. Í þeirra stað komu Guðjón Magnússon og Björgvin Stefán Pétursson. Aðrir í stjórn eru þær Þórunn María Þorgrímsdóttir og Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir, sem er varaformaður UÍA.
„Það er nauðsynlegt að endurnýja stjórnir félagasamtaka reglulega. Flott ungt fólk á milli þrítugs og fertugs hefur verið að taka við í stjórnum aðildarfélaga UÍA og nú fannst mér kominn tími á mig,“ er haft eftir Gunnari í fréttatilkynningu.
Þá er haft eftir Benedikt að hann hlakki til að taka við góðu búi sambandsins. UÍA fagni 80 ára afmæli á árinu, félagið sé með endurnýjaða stjórn og trausta fjárhagsstöðu til að ráðast í þau verk sem þarf að vinna.