Hlýjasti nóvember frá upphafi mælinga

Hlýtt veður í Hellisgerði í Hafnarfirði.
Hlýtt veður í Hellisgerði í Hafnarfirði. Eggert Jóhannesson

Meðalhiti nóvembermánaðarins var sá hæsti sem mælst hefur í nóvember á landsvísu. Var hitinn var um þremur gráðum hlýrri en að meðallagi og sló naumlega hitamet nóvembermánaðar frá 1945.

Þetta kemur fram í yfirliti Veðurstofunnar yfir tíðarfar í nóvember.   Mánuðurinn var með hlýjustu nóvembermánuðum sem mælst hafa á mörgum veðurstöðvum, t.a.m. sá hlýjasti frá upphafi mælinga í Grímsey, á Teigarhorni og á Hveravöllum, og aðeins einu sinni hefur mánaðarmeðalhiti nóvember verið jafn hár í Árnesi. Það var árið 2014, en sá nóvembermánuður er einnig á meðal þeirra hlýjustu frá upphafi mælinga.

Í Reykjavík var meðalhiti mánaðarins 5,1 stig sem er 2,9 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 og 2,6 stigum yfir meðallagi undanfarins áratugar. Hæsti hiti sem mælst hefur í nóvember í Reykjavík mældist 12,7 stig þann 13.  en nóvemberhitametið í Reykjavík var 12,6 stig frá 19. nóvember 1999.

Á Akureyri var meðalhiti mánaðarins 3,5 stigum umfram meðallag 1991 til 2020 og 3,4 stigum umfram meðallag síðustu tíu ára, en þar var meðalhitinn 4,2 stig. Í Stykkishólmi var meðalhitinn 4,6 stig og á Höfn í Hornafirði var hann 6,3 stig. Nýliðinn nóvembermánuður var sá þriðji hlýjasti frá upphafi mælinga í Reykjavík og á Akureyri og sá næsthlýjasti í Stykkishólmi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert