Fulltrúar VR, Landssambands íslenzkra verzlunarmanna, Rafiðnaðarsambandsins og Félags atvinnurekenda áttu í morgun fund með Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra til að ræða tillögur félaganna um lækkun og niðurfellingu tolla.
Tillögurnar beinast fyrst og fremst að tollum sem vernda ekki hefðbundna sauðfjár- og nautgriparækt.
Þrjár tillögur voru lagðar fyrir Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra, á fundinum. Tillögurnar eru allar byggðar á eldri lögum Samkeppniseftirlitsins og Samráðsvettvangs um aukna hagsæld.
- Tollar verði felldir niður af alifugla- og svínakjöti og frönskum kartöflum. Tollar falli niður af blómum sem ekki eru ræktuð á Íslandi. Tollar á t.d. túlipönum og rósum falli niður á tímabilum þegar innlend framleiðsla annar ekki eftirspurn.
- Innlendum afurðastöðvum búvöru og vinnslustöðvum í þeirra eigu verði óheimilt að bjóða í eða sækjast eftir tollkvóta fyrir innfluttar landbúnaðarafurðir, sbr. tillögur Samkeppniseftirlitsins frá 2012. Skoðaðar verði leiðir til að úthluta tollkvótum án endurgjalds, sbr. sömu tillögur.
- Tollar á mjólkur- og undanrennudufti og smjöri falli niður, sbr. tillögur Samkeppniseftirlitsins frá 2015.
Fundur samtakanna um tollamál með Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra er áformaður í næstu viku.