Tveir skipta með sér fyrsta vinning í lottóútdrætti kvöldsins og hlýtur hvor þeirra rétt rúmar 10,5 milljónir króna í vinning.
Annar miðinn var keyptur á heimasíðu lottó en hinn er í áskrift.
Þá skiptu tveir miðahafar með sér bónusvinningnum og fá þeir rúmar 270 þúsund krónur í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Söluturninum Hraunbergi í Reykjavík og á lotto.is.
Þá voru þrír miðahafar með annan vinning í Jókernum og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Vídeómarkaðnum í Hamraborg og á lotto.is en einn miðanna er í áskrift.