Ráðinn rekstrarstjóri Stöðvar 2

Sigurður Amlín Magnússon.
Sigurður Amlín Magnússon. Ljósmynd/Aðsend

Sigurður Amlín Magnússon hefur verið ráðinn í nýtt hlutverk rekstrarstjóra hjá Stöð 2.

Þar verður hann hluti af stjórnendateymi Stöðvar 2 og heyrir beint undir Evu Georgs Ásudóttur sjónvarpsstjóra.

Sigurður hefur starfað hjá félögum innan Sýnar frá árinu 2006, lengst af fyrir Vodafone en nú síðast sem forstöðumaður á sviði Fjármála og stefnumótunar.

Reyndur stjórnandi

Fram kemur í tilkynningu að hann sé reyndur stjórnandi með víðtæka reynslu af fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði og með sterkan bakgrunn í sölu- og markaðsmálum, tekju- og virðisstýringu, áætlanagerð, vörustýringu og stefnumótun.

„Sigurður Amlín er með einstaka þekkingu sem stjórnandi, bæði úr fjarskipta- og fjölmiðlaheiminum, og ég er gríðarlega spennt að fá hann til liðs við frábæran hóp Stöðvar 2. Ég hef trú á því að þekking hans, reynsla og metnaður komi til með að styrkja rekstrareininguna til muna,“ segir Eva Georgs Ásudóttir, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, í tilkynningunni.

„Það eru að mínu mati spennandi tímar fram undan hjá Stöð 2. Ég hlakka til þess að takast á við nýtt hlutverk með því frábæra fólki sem vinnur fyrir Stöð 2,“ segir Sigurður Amlín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert