Frambjóðandi hnyklaði vöðvana með áhrifavaldi

Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi er á fullu þessa dagana í kosningabaráttu fyrir forsetakosningar sem eru framundan. Arnar er einn 12 frambjóðenda og eflaust er hann fullmeðvitaður um að líkami og hugur þurfa að vera í topp formi fyrir komandi átök. 

Í viðleitni sinni til þess virðist hann nú njóta liðsinnis instagram áhrifavaldsins Guðmundar Emils Jóhannssonar sem þekktur er fyrir hreysti. 

Á myndbandi sem Guðmundur Emil hefur birt á samfélagsmiðlinum Instagram má sjá Arnar Þór taka á því með því að skella sér í sjóbað og gera svo líkamsæfingar með Guðmundi. Ekki er annað að sjá en Arnar Þór gefi áhrifavaldinum ekki þumlung eftir. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert