Hermann Nökkvi Gunnarsson
Ljósmyndarinn Hörður Kristleifsson hefur birt fyrstu yfirlitsmyndina frá Sundhnúkagígaröðinni frá því að goslokum var lýst yfir í morgun.
Á myndinni má sjá gíginn, sem látlaust hefur gosið úr síðustu vikur, þar sem hann stendur nú líflaus upp úr umhverfi sínu.
Þar sem áður vall bráðið hraun liðast nú um grár reykur og ber vitni um hitann sem enn leynist undir.
Veðurstofa Íslands lýsti yfir goslokum um klukkan átta í morgun. Gosið stóð yfir í tæplega 54 daga og því mun lengur en þau þrjú eldgos sem á undan komu við Sundhnúkagígaröðina.
Hin ýmsu örnefni í grennd við gosið hafa verið merkt inn á myndina, sem má skoða gagnvirkt hér að neðan.
Talið er að yfir 13 milljónir rúmmetrar af kviku hafi nú þegar safnast undir Svartsengi sem þýðir að næsta kvikuhlaup er komið með gott forskot, saman borið við tímabilin eftir fyrri goslok þar sem þá fyrst hefur undirbúningur næsta goss hafist.
„Við erum í rauninni í nákvæmlega sömu stöðu og við vorum í dagana og síðustu tvær vikurnar fyrir síðasta gos og þarsíðasta gos,“ segir Benedikt Gunnar Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.
Benedikt finnst líklegast að næsti atburður verði á sama svæði, hvort sem það verði kvikuinnskot eða eldgos. Jarðskorpan sé orðin deigari eftir fjögur gos og tvö kvikuinnskot, allt á sama hálfa árinu.
„Þetta er orðið veikasti punkturinn.“