Óleyst vandamál í Ísafjarðarbæ

Ísfirðingar leitast áfram við að finna lausn á vandamáli tengdu …
Ísfirðingar leitast áfram við að finna lausn á vandamáli tengdu kríunni. mbl.is/mbl.is

Ísfirðingar leitast áfram við að finna lausn á vandamáli tengdu kríunni í Skutulsfirði. Íbúar í Tunguhverfi, eða inni í firði eins og heimamenn orða það gjarnan, eru margir hverjir orðnir leiðir á sambúðinni við kríuna.

Krían hefur fært sig til í Skutulsfirði ef horft er til nokkurra áratuga. Seint á síðustu öld var hún inni í firði en þá hafði minna verið byggt á svæðinu. Þar sem Bónus-verslunin stendur í dag var áður malarvöllur fyrir knattspyrnuiðkendur svo dæmi sé tekið. Síðar færði krían sig á Suðurtangann og mun hafa haldið sig þar í allmörg sumur áður en hún tók aftur stefnuna nærri Tunguhverfinu.

Cristian Gallo, sérfræðingur hjá Náttúrustofu Vestfjarða, segir ekki mikið ákjósanlegt land í boði fyrir varpið nærri þeim slóðum sem varpið var upphaflega. Hann segir Íslendinga hafa litla reynslu af því að stýra kríuvarpi á nýja staði en það sé ekki óþekkt erlendis.

Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag, fimmtudag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert