Breski töframaðurinn Noah Kelly tilkynnti í dag, að hann ætli í mars að grafa sig í 320 kg af þroskuðum Cheddar osti og dvelja þar í tvo sólarhringa.
„Þetta er þolpróf. Ég ætla ekki að sýna aumingjaskap og nota mildan ost," sagði Kelly, sem ætlar liggja í ostinum í verslunarmiðstöð í enska bænum Weston-super-Mare.
Kelly fékk hugmyndina þegar hann lá í baði og hugsaði um bandaríska töframanninn David Blaine, sem dvaldi í 62 klukkustundir í ísmola á Times Square í New York á síðasta ári.
Kelly ætlar að taka með sér fartölvu inn í ostinn og svara tölvupósti frá aðdáendum sínum. Þá ætlar hann að hægja á öndun sinni með hugleiðsluaðferðum til að þola við inni í ostinum. Hann segist hugsanlega munu smakka á ostinum á meðan.
„Mér finnst ostur æðislegur núna, en ég veit ekki hvernig það verður á eftir," sagði Kelly.