ABS-bremsukerfi og fellihýsi með bremsu er varasöm blanda

Með aukinni fellihýsaeign er óhjákvæmilegt að óhöppum þeim tengdum fjölgi. Aðstæður hér á landi eru oft erfiðar og geta sviptivindar, djúp hjólför, malarvegir, blautir vegir og lausir steinar verið fellihýsaeigendum þrándur í götu á leið þeirra um landið.

ABS-bremsukerfið, hemlalæsivörnin, sem er á flestum nýjum bílum í dag, fer mjög illa saman við önnur bremsukerfi sem eru á þeim fellihýsum og tengivögnum sem eru með bremsur, sérstaklega þegar þarf að nauðhemla í bleytu og á malarvegum.

"Þetta eru tvö mismunandi kerfi og hafa hvort sína eiginleika," segir Jóhann Jóhannsson, verkefnastjóri og umferðarfulltrúi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og Umferðarstofu. Ef bíll með ABS-bremsukerfi með fellihýsi með venjulegu bremsukerfi í eftirdragi þarf að nauðhemla í bleytu eða möl er mikil hætta á að eftirvagninn taki völdin, segir Jóhann.

"ABS-kerfið virkar þannig að það hægir á hjólunum en læsir þeim ekki. Hins vegar læsast hjólin á fellihýsinu og þá er miklu frekar möguleiki á að það fari að ýtast út á aðra hliðina og getur farið að snúast, og þá snúið bílnum." Þar með glatist sú stjórn sem ökumaður getur haft á bílnum, jafnvel þó hann nauðhemli, sé bíllinn búinn ABS-bremsum. "Ef þetta gerist þá er voðalega lítið sem ökumaður getur gert. Ef hann er með 1.500 kg fellihýsi í eftirdragi og á álíka þungum bíl þá er voðalega erfitt að ná stjórn á bílnum aftur."

Fyrir bandarískar aðstæður

Fellihýsin eru framleidd í Bandaríkjunum og hönnuð með þarlendar aðstæður í huga, segir Jóhann. "Hér eru fleiri fjöll og verri vegir, hér er oft keyrt í fjallshlíðum þar sem eru sviptivindar og annað. Ég held að við séum með miklu verri aðstæður til að vera með fellihýsi. Það er ekki hægt að fara í hvernig veðri sem er með fellihýsi í togi." Jóhann segir að fólk geri sér oft ekki grein fyrir þessu, heldur leggi bara af stað þó illa viðri.

Sigurður Helgason, sviðsstjóri umferðaröryggissviðs hjá Umferðarstofu, segir það mikilvægt að menn hugsi út í veður áður en lagt er af stað: "Þegar menn eru að leggja af stað með svona eftirvagna þá skiptir miklu að vita hvernig veðrið er og hvernig veðrið á leiðinni er, þar eru til mjög góðar upplýsingar frá þjónustukerfi Vegagerðarinnar. Svo þarf að miða ferðalagið við það."

Töluvert hefur verið um tilkynnt tjón á fellihýsum í sumar, segir Birgir Guðmundsson frá Tryggingamiðstöðinni. Þó er ekki víst að tjónin séu að aukast meira en aukning á fellihýsum í umferð. Fellihýsin, sem og aðrir tengivagnar, eru tryggð með ábyrgðartryggingu bílsins þegar þau eru tengd við bíl í akstri, en einnig er hægt að kaupa kaskó-tryggingu á þau eins og bíla.

Birgir segir að nokkuð sé um að fellihýsi fjúki til á vegi í akstri: "Einnig missa menn fellihýsin út fyrir veg og þau losna aftan úr bílum, eða það kemur grjót upp undir botninn á þeim. Einnig hefur verið nokkuð um foktjón þar sem fellihýsunum er tjaldað á tjaldstæðum."

Aðspurður um ástæður þess að fellihýsin fjúka í akstri segir Birgir að þau séu léttari en bílarnir, og oft mjög kassalaga. Það þarf því minna til að óvæntar vindhviður feyki fellihýsinu en bílnum sem dregur það.

"Það eru ekki til tölur um þetta enn sem komið er, en það er alveg ljóst að slysatíðni bíla með fellihýsi og tjaldvagna er að aukast," segir Jóhann. Hann segir nokkur dæmi undanfarið um alvarleg slys þar sem fellihýsi komu við sögu, og svo sé alltaf talsvert af minni óhöppum. Hann segir það sérlega varasamt að vera með fellihýsi eða tengivagna sem eru nálægt eða yfir hámarksþyngd sem bíllinn má draga þegar hjólför séu djúp, og dæmi um umferðarslys þar sem djúp hjólför urðu þess valdandi að fellihýsið valt og fólk í bílnum sem dró það slasaðist.

Viðbótarspeglar nauðsynlegir

Jóhann segir að þrátt fyrir áróður í sumar sé ekki enn nógu mikið um að ökumenn með fellihýsi, eða aðra breiða tengivagna, noti viðbótar hliðarspegla. Lögum samkvæmt þarf ökumaður að geta séð meðfram báðum hliðum tengivagnsins, og þarf að bæta við viðbótarspeglum ef svo er ekki.

"Viðbótarhliðarspeglar þyrftu að vera staðalbúnaður með hverju seldu fellihýsi," segir Jóhann. Hann segir að svo virðist sem sumir átti sig ekki á lögum um nauðsyn þess að nota viðbótarhliðarspegla, jafnvel þegar keyrt er um á jeppa með lítið fellihýsi. Algengt er að menn telji sig ekki þurfa speglana þar sem þeir sjá aftur fyrir bílinn með baksýnisspeglinum.

Ef viðbótarspeglar eru ekki notaðir stóreykst hættan á óhappi þegar bíll með fellihýsi tekur vinstri beygju. Erfitt er að sjá hvort annar bíll sé í framúrakstri og hafa orðið nokkur lítil óhöpp af þessum völdum undanfarið, að sögn Jóhanns.

Ættu að vera skoðunarskyld?

Full þörf á að hafa stærri fellihýsi og aðra tengivagan með bremsur skoðunarskyld, að mati Jóns Hjalta Ásmundssonar, tæknistjóra ökutækjasviðs Frumherja. "Það er alltaf að verða skýrara og skýrara að það sé æskilegt að koma þessu í skoðun. Kannski ekki árlega heldur á tveggja til þriggja ára fresti."

Um 60 manns nýttu sér tilboð Frumherja og VÍS til að láta skoða fellihýsi eða tjaldvagn fyrir verslunarmannahelgina. Nokkrir sem komu voru með fellihýsi með bremsum og í þeim tilvikum var yfirleitt eitthvað að bremsunum, segir Jón Hjalti. "Þetta eru yfirleitt rafmagnsbremsur, þær voru annað hvort vanstilltar eða algerlega óvirkar í einhverjum tilvikum. Það var hægt að laga eitthvað af þessu þegar þetta var stillingaratriði, en í öðrum tilvikum vantaði rafmagnsbúnaðinn, eða þurfti að tengja hann rétt."

Annars voru fellihýsin sem komið var með í skoðun almennt í góðu ástandi. "Margir fengu athugasemdir í sambandi við ýmis smáleg atriði eins og ljósabúnað. Það voru nokkrir bílar með ónýtar hjólalegur. Oft eru menn líka með gamla vagna og mikið notuð dekk. Einnig kom fyrir í örfáum tilvikum að bílarnir máttu ekki draga svona þungan bremsulausan vagn."

brjann@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert