Handtekinn með 24 bíllykla á sér

Lögreglumennirnir Ríkharður Örn Steingrímsson og Karl Arnarson (til hægri) eru …
Lögreglumennirnir Ríkharður Örn Steingrímsson og Karl Arnarson (til hægri) eru með lyklana 24 sem fundust í fórum mannsins. Morgunblaðið/Júlíus

Tuttugu og fjórir bíllyklar að jafnmörgum bílum fundust á manni sem lögreglan í Reykjavík handtók í gær vegna gruns um þjófnað.

Handtaka mannsins, sem hefur nokkrum sinnum áður komið við sögu lögreglu, tengdist öðru máli en lögreglan fann lyklana við leit á manninum.

Samkvæmt upplýsingum frá aðalvarðstjóra lögreglunnar í Reykjavík er ekki enn vitað hvernig maðurinn notaði lyklana og hvort þeir hafa verið notaðir til innbrota í bifreiðir en yfirheyrslur yfir manninum fóru fram síðdegis í gær. Aðalvarðstjóri mundi ekki eftir því að lögreglan hefði fundið annað eins magn af bíllyklum á einum og sama manninum.

Að sögn lögreglu hefur bílþjófnaður þó ekki færst í aukana að undanförnu og ekki hefur orðið vart við að bílþjófar séu betur tækjum búnir en áður.

Lögreglan í Reykjavík vill af þessu tilefni ítreka við ökumenn að ganga eins tryggilega frá ökutækjum og kostur er og skilja ekki aukalykla eftir á glámbekk eða inni í bílnum, t.d. í hanskahólfi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert