Stal tölvugögnum fyrir 150 þúsund krónur

Kona kom á lögreglustöð í Reykjavík um helgina og lagði fram kæru vegna þess að einhver hafði farið inn á þráðlausan beini í íbúð hennar og hlaðið niður miklu magni af tölvugögnum. Segir lögreglan, að gagnamagnið sem stolið var á þennan hátt, hafi verið um 60 gígabæt sem kosti um 150.000 krónur krónur samkvæmt reikningi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert