Forstjóri Olís biður viðskiptavini og landsmenn afsökunar

Höfuðstöðvar Olís.
Höfuðstöðvar Olís.

Einar Benediktsson, forstjóri Olíuverslunar Íslands, biður í tilkynningu landsmenn afsökunar á því sem miður hafi farið í starfsemi félagsins. Hann segir, að félagið hafi hins vegar margar athugasemdir við skýrslu Samkeppnisstofnunar og telji nauðsynlegt að fá skorið úr um málið fyrir áfrýjunarnefnd samkeppnismála og ef þörf krefji fyrir dómstólum landsins.

Yfirlýsingin er eftirfarandi:

    Olíuverzlun Íslands hf. og viðkomandi stjórnendur biðja viðskiptavini félagsins og aðra landsmenn afsökunar á því, sem miður hefur farið í starfsemi félagsins. Félagið hefur hins vegar margar athugasemdir við skýrslu Samkeppnisstofnunar og telur nauðsynlegt að fá skorið úr um málið fyrir áfrýjunarnefnd samkeppnismála og ef þörf krefur fyrir dómstólum landsins.

    Sú erfiða ákvörðun var tekin innan félagsins, að tjá sig ekki að sinni í fjölmiðlum um skýrslu Samkeppnisstofnunar um meint ólögmætt samráð olíufélaganna. Augljóslega skaðar það félagið í þeirri umræðu, sem nú fer fram. Ástæðan er sú að málið er einnig til rannsóknar hjá embætti ríkislögreglustjóra.

    Stjórnendur félagsins reyndu á fundum með starfsmönnum Samkeppnis­stofnunar að upplýsa málið. Starfsmenn Samkeppnisstofnunar völdu hins vegar þá leið í skýrslu sinni að gera hlut olíufélaganna og starfsmanna þeirra enn verri, en efni standa til og í mörgum tilfellum, að því er virðist, draga vísvitandi rangar ályktanir í einstökum efnisatriðum. Þátttaka í opinberri umfjöllun nú er félaginu og stjórnendum þess ómöguleg, þar sem slíkt gæti skaðað réttarstöðu félagsins og einstaklinga á síðari stigum.

    Ég bið um þolinmæði viðskiptavina og annarra landsmanna til að bíða með endanlegan dóm, þar til málið hefur fengið umfjöllun í réttarkerfi landsins. Félagið og ég sem forstjóri þess mun axla þá ábyrgð, sem réttarkerfi landsins ákvarðar.

    Einar Benediktsson

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert