Stærstu hluti höfuðborgarsvæðisins varð rafmagnslaus í nokkrar mínútur á tólfta tímanum í morgun. Einni aðflutningsleið Landsvirkjunar til borgarinnar sló út og við það urðu níu af 12 aðveitustöðvum Orkuveitu Reykjavíkur spennulausar.
Rafmagnslaust varð í um þrem fjórðu hluta höfuðborgarsvæðisins, Reykjavík nema miðbærinn, Kópavogi, Garðabæ og Mosfellsbæ. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur tókst að koma rafmagni á eftir skamma stund, eða eftir fjórar mínútur. Ekki er ljóst á þessari stundu hvað olli rafmagnsleysinu.