Barðist við tíu Pólverja

Íslendingur var handtekinn af lögreglunni í Drammen í Noregi síðast liðið sunnudagskvöld vegna slagsmála við tíu Pólverja. Maðurinn var blóðugur og hafði skeinst í átökunum en það sem telst sérstætt við atburðinn, fyrir utan hinn gríðarlega liðsmun, er að maðurinn féllst á að fara upp í bíl með konu einni eftir slagsmálin, samkvæmt frásögn blaðsins Drammens Tidende, en gerði sér lítið fyrir og stökk út úr bílnum til að herja aftur á Pólverjana. Eftir þá lotu var hann handtekinn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert