Skrifað undir samning um verkefnið „Karlar til ábyrgðar"

Jón Kristjánsson, félagsmálaráðherra, skrifaði í morgun undir samning um framkvæmd verkefnisins „Karlar til ábyrgðar". Um er að ræða eina sérhæfða meðferðartilboðið fyrir karla sem beita ofbeldi á heimilum hér á landi. Félagsmálaráðuneytið segir, að reynslan af slíku meðferðarstarfi sé góð bæði hér á landi og erlendis, en talið sé að árlega séu um 1100 konur beittar ofbeldi af hálfu maka eða fyrrverandi maka.

Sálfræðingar munu annast meðferðarstarfið, en markmið verkefnisins er að veita körlum, sem beitt hafa heimilisofbeldi, meðferð og aðstoð séu þeir reiðubúnir að leita sér hjálpar. Áhersla er lögð á að gerendur komi sjálfviljugir í meðferð og axli sjálfir ábyrgð á ofbeldinu. Meðferðin byggist á einstaklingsviðtölum og getur staðið frá sex mánuðum til tveggja ára.

Samhliða meðferðarstarfinu verður starfandi sérstök verkefnisstjórn með þátttöku Jafnréttisstofu, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis og Samtaka um Kvennaathvarf og fulltrúi Jafnréttisstofu verður verkefnisstjóri. Hlutverk verkefnisstjórnarinnar er m.a. að skilgreina þróun verkefnisins til framtíðar í samráði við meðferðaraðila, fylgjast með daglegri starfsemi og standa fyrir mati á árangri verkefnisins.

Upplýsingar um viðtöl og meðferðir eru veittar í Hjálparsíma Rauða krossins í síma 1717, en einnig má hafa beint samband við sálfræðingana Einar Gylfa Jónsson og Andrés Ragnarsson.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert