Mögulegt verði að leggja hald á ökutæki

Drög að frumvarpi til breytinga á umferðarlögum nr. 540/1987 eru nú tilbúin til umsagnar en breytingunni er ætlað að herða viðurlög vegna hraðakstursbrota, koma á þrepaskiptum ökuleyfisréttingum og leggja mögulega hald á ökutæki við ítrekuð brot. Veittur verður umsagnarfrestur til 10. nóvember næstkomandi, segir á vef samgönguráðuneytisins.

Í umræðum í þjóðfélaginu undanfarin misseri hefur ítrekað komið fram krafa um að hert verði viðurlög við umferðarlagabrotum ekki síst ofsaakstri og afleiðingar slíks háttalags. Frumvarpinu er ætlað að breyta viðurlagakafla umferðarlaganna einkum vegna hraðakstursbrota. Í frumvarpinu er lagt til að tekið verði sérstaklega hart á hraðakstursbrotum þegar ekið er á og yfir tvöföldum hámarkshraða jafnframt því sem settar verði reglur um auknar sektir þegar í hlut eiga ökumenn sem stjórna stórum ökutækjum, segir á vefnum.

Meðal nýmæla í frumvarpsdrögunum er að bráðabirgðaökuskírteini verði gefin út til þriggja ára og að ráðherra geti sett reglur um ákveðnar takmarkanir á heimild byrjanda til að stjórna ökutæki. Yrðu þær takmarkanir bundnar við ákveðinn tíma sólarhrings, takmarkaður yrði fjöldi farþega yngri en 20 ára og takmörkun á afli hreyfils bílsins. Getur ráðherra ákveðið hvort slíkar takmarkanir taki til byrjanda á gildistíma bráðabirgðaökuskírteinisins allt þar til hann verður 20 ára.

Þá gerir frumvarpið ráð fyrir heimild lögreglu til að leggja hald á ökutæki vegna grófra og ítrekaðra brota. Voru þar höfð hliðsjónar ákvæði dönsku umferðarlaganna um slíka heimild lögreglu. Ekki eru líkur á að oft muni reyna á slíkt ákvæði, en engu að síður er æskilegt að möguleiki sé fyrir hendi lögum samkvæmt til að grípa til slíkra aðgerða gagnvart síbrotamönnum í umferðinni.

Tölur sýna að 28% af banaslysum í umferðinni á árunum 1998-2005 voru af völdum ökumanna upp að 24 ára aldri, og er þessu frumvarpi ætlað að gera auknar kröfur til þessa hóps í því skyni að auka öryggi í umferðinni. Helstu nýmæli eru að lagt er til að bráðabirgðaskírteini gildi nú í þrjú ár í stað tveggja áður en þó verður enn möguleiki fyrir þann sem ekki hefur gerst brotlegur við umferðarlög að fá fullnaðarskírteini við 18 ára aldur. Ennfremur kemur það nýmæli inn í frumvarpið, að lagt er til að beita skuli akstursbanni ef ungur ökumaður hefur fengið 4 eða fleiri refsipunkta vegna umferðarlagabrota. Þá myndi ungum ökumanni vera bannað að stjórna ökutæki þar til hann/hún hefur farið í ökunámskeið og tekið ökupróf að nýju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert