Karlmaður kærður fyrir tilraun til nauðgunar

Karlmaður hefur verið kærður fyrir tilraun til nauðgunar í húsi í Þorlákshöfn í gærmorgun að sögn lögreglunnar á Selfossi. Greint var frá því fyrr í dag að ráðist hefði verið á sofandi mann í heimahúsi, en í ljós hefur komið að maðurinn hafði gert sig líklegan til þess að neyða konu í húsinu til samræðis en vinir hennar komu henni til hjálpar eftir að maðurinn hafði neitað að yfirgefa húsið.

Til átaka kom sem enduðu á þann veg að manninum var hent út úr húsinu. Konan hefur nú kært manninn fyrir tilraun til nauðgunar og þetta hefur lögreglan á Selfossi staðfest.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert