Bæjarstjórn Vestmannaeyja vill leigja gríska ferju

Aqua Jewel er smíðað 2005 í Grikklandi.
Aqua Jewel er smíðað 2005 í Grikklandi.

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti samhljóða á fundi sínum í gær gríska ferjan Aqua Jewel, sem ber allt að 200 bíla og 1000 farþega verði tekin á leigu í stað Herjólfs.

„Með vísan í samhljóða ályktun sína frá 27. júlí sl. um samgöngumál skorar bæjarstjórn Vestmannaeyja á samgönguráðherra að stórbæta samgöngur á sjó milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja með því að ganga tafarlaust til samninga um leigu á umræddu skipi eða öðru sambærilegu þannig að slíkt skip hefji siglingar ekki síðar en í apríl 2007,” segir í tillögunni sem allir bæjarfulltrúarnir sjö skrifuðu upp á.

Þetta kemur fram á fréttavefnum sudurland.is

Aqua Jewel er smíðað 2005 í Grikklandi.

  • Lengd 96,8 m / 108,8 m
  • Breidd 16,8 m
  • Ristir 4,4 m
  • 3.045 brúttótonn
  • Aðalvélar MAN-B&W
  • Ganghraði 19 mílur.
  • Farþegafjöldi 795
  • Kojur eru 36
  • Tekur 155 bíla.
  • mbl.is

    Bloggað um fréttina

    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert