Ökumaður sofnaði undir stýri í Kömbunum

Að sögn lögreglunnar á Selfossi slapp ökumaður með skrekkinn þegar hann sofnaði undir stýri er hann ók neðst í Kömbunum í nágrenni Hveragerðis um 19:30 í gærkvöldi. Lögregla segir mildi að maðurinn hafi misst bílinn til hægri í möl í stað þess að ökumaðurinn hafi sveigt til vinstri. Bifreiðin skemmdist ekkert og ökumaðurinn slapp ómeiddur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert