Búferlaflutningar til landsins aldrei meiri

mbl.is/Eyþór

Í nýju riti Hagstofunnar um búferlaflutninga á árunum 1986-2006 kemur fram, að undanfarin tvö ár hafi einkennst af umfangsmeiri flutningum til landsins en önnur ár. Tíðni aðfluttra umfram brottflutta í millalandaflutningum var 17,3 samanborið við 13 ári áður.

Í öllum landshlutum voru aðfluttir fleiri en brottfluttir í millilandaflutningum. Þar munar mestu um Austurland en í kjölfar virkjana og stóriðjuframkvæmda þar hafa flutningar til Austurlands frá útlöndum aukist mikið undanfarin ár.

Hagstofan segir, að það veki athygli að erlendum körlum hafi fjölgað mjög ört í flutningum til landsins. Til ársins 2003 voru konur alla jafna fleiri en karlar í flutningum en nú sé þessu öfugt farið. Mest áberandi sé þetta á Austurlandi en þangað fluttu nær tíu sinnum fleiri karlar en konur frá útlöndum.

Svonefndur flutningsjöfnuður í innanlandsflutningum var neikvæður á öllum landsvæðum fyrir utan höfuðborgarsvæðið, Suðurnes og Suðurland. Í nær öllum þéttbýlisstöðum á Norðurlandi og Vestfjörðum var flutningsjöfnuður innannlands neikvæður. Þetta á t.a.m. við um Akureyri en ólíkt því sem verið hefur undanfarin ár fluttust fleiri frá bænum en til hans.

Hagstofan segir, að þótt flutningsjöfnuður í innanlandsflutningum sé neikvæður á Austurlandi sé hann talsvert hærri en verið hafi og sé nú -0,5 samanborið við -10 ári áður. Flutningsjöfnuður í stærstu þéttbýlisstöðunum á Austurlandi er jákvæður, einkum á Egilstöðum en þar var flutningsjöfnuður í innanlandsflutningum hærri en annars staðar á landinu.

Athugun á flutningum milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar á umræddu tímabili leiðir í ljós að nokkuð hefur dregið úr því forskoti sem höfuðborgarsvæðið hefur haft á landsbyggðina undanfarna áratugi. Segir Hagstofan, að þetta megi öðru fremur rekja til þess að flutningsstraumurinn til þéttbýlisstaða í nágrenni höfuðborgarsvæðis hafi aukist jafnt og þétt. Í öllum þéttbýlisstöðum í nágrenni höfuðborgarsvæðis með fleiri en 2000 íbúa, þ.e. Akranes, Hveragerði, Selfoss og Keflavík var flutningsjöfnuður í innanlandsflutningum meiri en 15 á hverja 1000 íbúa. Hæstur var hann í Hveragerði, 39,3.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert