Féll úr stiga og slasaðist

Maður slasaðist þegar hann féll úr stiga þar sem hann var að vinna við nýbyggingu í Hveragerði í dag. Að sögn lögreglunnar á Selfossi missti maðurinn jafnvægið þegar hann var að vinna í efst í stiganum, en fallið var um tveir og hálfu metri. Stiginn féll undir manninn og maðurinn lenti með kviðinn á stigann. Maðurinn var fluttur á slysadeild í Reykjavík en talið er að hann hafi viðbeinsbrotnað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert