NATO-fundi mótmælt

Lögreglan á höfðuborgarsvæðinu hafði afskipti af einum manni sem hafði klifrað upp í ljósamastur á Laugardalsvelli í dag og hengt þar mótmælendaborða, en maðurinn var að mótmæla fundi NATO-ríkjanna sem fram fer í Laugardalshöll. Maðurinn var færður niður á stöð en sleppt skömmu síðar. Að sögn lögreglu hefur lítið borið á mótmælum við fundarstaðinn í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert