Kringlumýrarbraut lokað vegna umferðarslyss

Kringlumýrarbraut í Reykjavík var lokað á ellefta tímanum í kvöld á móts við Nesti vegna umferðarslyss. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu mun ökumaður bíls, sem var á norðurleið eftir brautinni, hafa misst stjórn á bíl sínum sem valt yfir á suðurakreinina, sem nú er lokuð. Ekki fengust upplýsingar að svo stöddu um meiðsl á fólki eða tjón á bílum en talsverður viðbúnaður lögreglu er á staðnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert