Kennari dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn nemanda

Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur dæmt karlmann í 15 mánaða skilorðsbundið fangelsi, en maðurinn átti í kynferðissambandi við stúlku á unglingsaldri, sem var nemandi hans í grunnskóla. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða stúlkunni 500 þúsund krónur í bætur.

Maðurinn var dæmdur samkvæmt ákvæði almennra hegningarlaga um að sá sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við barn yngra en 18 ára, sem honum hefur verið trúað fyrir til kennslu eða uppeldis, skuli sæta fangelsi allt að 8 árum og allt að 12 árum sé barnið yngra en 16 ára.

Fram kemur í niðurstöðu fjölskipaðs héraðsdóms, að samband kennarans og stúlkunnar stóð frá árinu 2003, þegar stúlkan var 13 ára og til ársins 2006. Þar segir einnig, að með því að taka upp kynferðislegt samband við nemanda sinn, sem varði í langan tíma, hafi maðurinn framið alvarlegt trúnaðarbrot, sem þung refsing liggi við að lögum. 

Manninum verði hins vegar virt til mikilla málsbóta, að gagnkvæmt ástarsamband hafi verið á milli hans og stúlkunnar og hann hafi lýst því, að fyrir sitt leyti hefði hann viljað halda því áfram og gera það opinbert. Því ákvað dómurinn að skilorðsbinda refsinguna að fullu.

Fram kemur í dómnum, að stúlkan bar að á tímabili hafi hún talið sig vera ástfangna af manninum þótt hún hafi varla vitað hvað var  að gerast, enda hafi hlutirnir gerst hratt á þessum tíma. En nú, þegar hún hafi fengið utanaðkomandi aðstoð, viti hún að þetta hafi ekki verið nein ást.

Dómurinn sagði ljóst, að samband stúlkunnar og kennarans hafi haft áhrif á tilfinningalega líðan hennar og valdið henni félagslegum erfiðleikum.  Því væri maðurinn bótaskyldur gagnvart henni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert