Sigurður Ingi ekki á fundi formanna

Formennirnir funda nú í þinghúsinu.
Formennirnir funda nú í þinghúsinu. mbl.is/Árni Sæberg

Formenn allra flokka sem eiga sæti á Alþingi funda nú með forseta Alþingis í þinghúsinu í þeirri von um að ná samkomulagi um með hvað hætti verður hægt að ljúka þingstörfum fyrir kosningar.

Þórunn Egilsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, situr fundinn í fjarveru Sigurður Inga Jóhannssonar, formanns flokksins. En mikið hefur gengið á innan Framsóknarflokksins frá því Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi formaður, sagði sig úr flokknum í gær og tilkynnti að hann ætlaði að vinna að myndun nýs stjórnmálaafls. 

Fjögur mál hafa verið í umræðunni sem þykir brýnt að ná samkomulagi um að klára fyrir kosningar, en það eru breytingar á lögum um uppreist æru, lögfestinga NPA – notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar fyrir fatlað fólk, breytingar á útlendingalögum og stjórnarskrá.

Formennirnir funduðu þrisvar í síðustu viku í sama tilgangi án þess að skýr niðurstaða fengist. 

Enginn formannanna veitti viðtal fyrir fundinn í dag en eftir þriðja fundinn í síðustu viku sagði Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, að hann væri ekkert endilega bjartsýnn á að formennirnir næðu samkomulagi sem allir gætu sætt sig við. Hann sagði það þó ekki mega gerast að ekkar mál yrði afgreitt og að farið yrði beint í kosningabaráttu. „Það verður þá bara að fara þarna upp og síðan verður meiri­hlut­inn að skera úr um hvað meiri­hlut­inn vill. Þannig virk­ar Alþingi,“ sagði Logi og átti þar við þingsalinn.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, sagði þá að samtalið væri að þróast.

Í samtali við mbl.is fyrr í dag sagði Unnur Brá að það væri alveg kominn tími á að klára þessar umræður. Hún vonaðist til að einhver árangur næðist í dag. Fundurinn formannanna hófst klukkan 15.15.

Uppfært klukkan 16.00:

20 mínútna hlé var gert á fundi formannanna svo þeir gætu rætt við sína þingflokka. Fundinum verður haldið áfram að því loknu.

Uppfært klukkan 17:30:

Fundarhléið hefur dregist á langinn og ljóst er að miklar umræður eru að eiga sér stað hjá þingflokkunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert