[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Skipholt, 105 Reykjavík Skipholt Reykjavík
Kársnesbraut, 200 Kópavogur Kársnesbraut Kópavogur
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Ástún, 200 Kópavogur Ástún Kópavogur
Drafnarstígur, 101 Reykjavík Drafnarstígur Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Sólbaðsstofa, 110 Reykjavík Sólbaðsstofa Reykjavík
Steingrímur J. Sigfússon og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ásamt forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni á Bessastöðum

Steingrímur J. Sigfússon og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ásamt forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni á Bessastöðum mbl.is/Rax

Innlent | mbl.is | 27.1.2009 | 11:27

Falið að mynda stjórn

Bloggað um fréttina

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fól í dag Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formanni Samfylkingarinnar, og Steingrími J. Sigfússyni að ræða saman um myndun minnihlutastjórnar. Sagðist Ólafur Ragnar hafa falið Ingibjörgu Sólrúnu að stýra þeim viðræðum.

Fram kom hjá Ólafi Ragnari að til greina kæmi að einn eða tveir einstaklingar utan þingsins gætu tekið sæti í stjórn af þessu tagi. Það myndi þó koma í ljós hver niðurstaðan verði en slík stjórn væri nálægt þeim hugmyndum, sem komið hefðu fram að undanförnu.

Forsetinn sagði, að gert væri ráð fyrir því að hann myndi ræða við Steingrím og Ingibjörgu Sólrúnu síðdegis á morgun eða á fimmtudagsmorgun um gang mála. Hefði hann óskað eftir því að viðræðurnar myndu aðeins taka nokkra daga en ekki vikur.

Ingibjörg Sólrún sagði að þau Steingrímur hefðu tekið við keflinu af forsetanum og myndu nú setjast yfir það hvort hægt væri að mynda öfluga ríkisstjórn, sem gæti orðið starfhæf fyrir helgi. Þetta myndu þau ræða í dag eða á morgun.

Steingrímur sagði að þeim hefði nú verið falið þetta verk. Mikilvægt væri að eyða óvissu í stjórnmálunum og niðurstaða af eða á þurfi að liggja fyrir sem fyrst. 

Ólafur Ragnar sagði eftir fund með Ingibjörgu og Steingrími, að hans niðurstaða, eftir viðræður við formenn flokkanna í gær, hefði verið, að  ekki væri grundvöllur, að svo komnu máli, til að hefja viðræður um samstarf allra flokka, sem stundum hefur verið nefnd þjóðstjórn. Hann bætti við, að  sögulega séð hafi þó stjórn sem bar það heiti fyrir 60 árum, ekki verið stjórn allra flokka.

Hins vegar hefði komið skýrt fram, að það sé vilji Samfylkingarinnar og VG að ræða saman um myndun ríkisstjórnar sem nyti stuðnings Framsóknarflokksins. Þá hefði komið fram hjá formanni Framsóknarflokksins í gærkvöldi, að flokkurinn væri reiðubúinn til að bæði verja ríkisstjórn Samfylkingar og VG falli og stuðla að, því að hún geti komið málum gegnum þingið á árangursríkan hátt.

Einnig hefði komið fram vilji formanns Frjálslynda flokksins að eiga einhverskonar samstarf við slíka ríkisstjórn svo framarlega sem  málefnagrundvöllur væri fyrir hendi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Tengdar fréttir - Alþingiskosningar 2009

Viðskipti | mbl.is | 22.05.2009 | 20:16

Lítilsháttar lækkun á Wall Street

Innlent | mbl.is | 10.05.2009 | 18:12

Ekki hyggindi að slátra mjólkurkúnni

Innlent | mbl.is | 10.05.2009 | 17:45

Margt ágætt en ósammála um tvennt

Innlent | mbl.is | 22.04.2009 | 20:51

Trúi ekki að Samfylkingin láti stranda á ESB

Innlent | mbl.is | 22.04.2009 | 20:01

Allt upp á borð fyrir kosningar?

Innlent | mbl.is | 22.04.2009 | 19:55

Segir 40 aðila hafa styrkt sig

Innlent | mbl.is | 22.04.2009 | 19:29

Ósammála punktur is

Innlent | mbl.is | 22.04.2009 | 17:45

Þrjú fengu 2 milljónir frá Baugi

Innlent | mbl.is | 22.04.2009 | 16:41

Steinunn Valdís fékk fjórar milljónir

Innlent | mbl.is | 21.04.2009 | 21:29

VG menn þáðu ekki styrki

Fleiri tengdar fréttir

Leita í fréttum mbl.is

Innlent / Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Laugardaginn 13. mars
Fimmtudaginn 11. mars
Miðvikudaginn 10. mars
Sunnudaginn 7. mars
Laugardaginn 6. mars
Föstudaginn 5. mars
Þriðjudaginn 2. mars
Sunnudaginn 28. febrúar
Laugardaginn 27. febrúar
Föstudaginn 26. febrúar
Fimmtudaginn 25. febrúar
Miðvikudaginn 24. febrúar
Þriðjudaginn 23. febrúar