Engum er lengur treystandi. Nú hefur naglasnyrtir Britney Spears ljóstrað því upp að stelpan nagi táneglurnar!
Naglasnyrtirinn fullyrðir að Spears hafi viðurkennt að hafa þennan leiða ávana en hún nagar líka neglurnar á fingrunum. Ávaninn á víst að vera það slæmur að hún á að hafa gengið til dáleiðara í þeirri von að hann fengi hana til að hætta, en án árangurs.