Bent Larsen sæmdur fálkaorðu

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhendir Bent Larsen fálkaorðuna.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhendir Bent Larsen fálkaorðuna.

Danski skákmeistarinn Bent Larsen var sæmdur fálkaorðunni við hátíðlega athöfn í dag. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, fagnaði Larsen innilega og rifjaði upp að einvígi Larsens og Friðriks Ólafssonar 1956 hefði verið afar eftirminnilegt og væri sennilega fyrsti alþjóðlegi viðburðurinn sem hann myndi eftir. Við þetta tækifæri drógu Bent Larsen og Friðrik Ólafsson um það hvor skyldi hefja leikinn í einvígi þeirra, sem hefst í dag. Hafði Larsen þar betur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert