Svo til allar nótur og hljómar viðlagsins eins

Birgitta Haukdal syngur sigurlagið.
Birgitta Haukdal syngur sigurlagið. mbl.is

Lögin "Segðu mér allt" eftir Hallgrím Óskarsson og "Right Here Waiting" með bandaríska tónlistarmanninum Richard Marx eru of lík til að hægt sé að mæla með því að fyrrnefnda lagið verði sent sem framlag Íslendinga í söngvakeppni sjónvarpsstöðva í Evrópu. Þetta er niðurstaða trúnaðarmanna Sambands tónskálda og eigenda flutningsréttar (STEF) sem telja of mikla hættu á málsókn verði lagið sent í keppnina.

Í áliti þeirra Arnar Óskarssonar og Ríkarðs Arnar Pálssonar, sem STEF fékk til að rannsaka líkindi laganna tveggja, er það rakið að viðlagskaflar spila stórt hlutverk í báðum lögum auk þess að vera mjög líkir að því er varðar lengd og form. Þá séu svo til allar aðalnótur viðlaganna og flestir hljómar eins eða skyld.

Niðurstaða þeirra er því eftirfarandi: "Í ljósi ofangreinds samanburðar treystum við undirritaðir okkur ekki til að mæla með að SMA [Segðu mér allt] verði flutt í Evrópusöngvakeppninni í núverandi mynd vegna hættu á málsókn."

Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri STEFs, segir að Hallgrímur og matsmennirnir hafi hist á fundi í gær og Hallgrímur komið athugasemdum sínum á framfæri, en álitið standi óbreytt. "Við höfum bent Hallgrími á að hann væri að taka áhættu með því að fara með lagið óbreytt í keppnina," segir Eiríkur.

Hallgrímur segir í yfirlýsingu, sem hann sendi frá sér í gær, að niðurstaða matsmanna STEFs hafi verið sú að ekki sé hægt með óyggjandi hætti að sýna fram á að um lagastuld eða brot á höfundarrétti sé að ræða.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes