Breski sjónvarpskokkurinn Nigella Lawson hefur gifst auðkýfingnum og málverkasafnaranum Charles Saatchi. Brúðkaupið var haldið í Lundúnum í gærmorgun og aðeins börn þeirra frá fyrri hjónaböndum voru viðstödd.
Lawson, sem er 43 ára gömul, eignaðist tvö börn með eiginmanni sínum sem lést úr krabbameini fyrir rúmum tveimur árum. Saatchi, sem er sextugur, á dóttir frá fyrra hjónabandi.