Framlag Íslands til Evróvision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, hefur verið valið. Upplýst var í Kastljósi Sjónvarpsins að lagið nefnist Heaven og er eftir Svein Rúnar Sigurðsson en textinn er eftir Magnús Þór Sigmundsson. Jón Jósep Snæbjörnsson, betur þekktur sem Jónsi, söngvari hljómsveitarinnar Í svörtum fötum mun flytja lagið en keppnin verður haldin í Istanbul í Tyrklandi.