Nútíma glysrokkararnir í Placebo ætla að kæta landann með komu sinni til landsins í júlí nk. að því er kom fram í morgunþætti Ríkisútvarpsins í morgun. Hljómsveitin, sem skipuð er þeim Brian Molko, Steve Hewitt og Stefan Olsdal, gaf á síðasta ári út sína fjórðu plötu, Sleeping with Ghosts, og hefur hún selst vel hér á landi sem og aðrar skífur sveitarinnar.