Gabor Kiraly, markvörður þýska knattspyrnuliðsins Hertha Berlin, sleit vöðva í kálfanum þegar hann fagnaði sigri liðs síns á Hannover í gær. Kiraly sat á varamannabekknum en hann meiddi sig þegar hann spratt á fætur til að fagna marki.
Kiraly, sem er landsliðsmarkvörður Ungverja, hefur þurft að sitja á bekknum að undanförnu en Hertha Berlín á í mikilli fallbaráttu. Kiraly verður frá keppni í nokkrar vikur vegna meiðslanna.
„Ég hef aldrei séð annað eins," sagði Hans Meyer, þjálfari Herthu. „Þetta kemur stundum fyrir gamla menn," sagði hann og glotti. Kiraly er 27 ára.