Það er grafalvarlegt mál að svindla á prófi en óvíða eins og á Indlandi.
Þegar 500.000 námsmenn gengust undir próf í Bihar-ríki á dögunum gættu þeirra 5.000 lögreglumenn auk kennaranna og árvökul augu þeirra létu ekkert fram hjá sér fara. Komst upp prófsvindl hjá 168 námsmönnum og hafa þeir nú verið fangelsaðir.