Rán í verslun 10-11 í gærkvöldi

Rán var framið í verslun 10-11 við Seljaveg í Reykjavík á ellefta tímanum í gærkvöldi. Karlmaður á tvítugsaldri fór inn í verslunina og ógnaði starfsfólki með sprautunál sem hann hafði meðferðis, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Reykjavík. Hann fór síðan í peningakassa verslunarinnar og hafði á brott með sér fé úr versluninni. Lögregla handtók þjófinn hálftíma síðar á Njálsgötu. Hann gisti fangageymslur lögreglunnar í nótt og verður yfirheyrður í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert